Veðurskýrslur benda til að flakið sé Alexander Hamilton

21. ágúst 2009

Starfsmenn Landhelgisgæslunnar hafa aflað upplýsinga um skipin sem talin eru koma til greina sem skipsflök á botni Faxaflóa. Skipin eru bandaríska varðskipið Alexander Hamilton sem varð fyrir árás þýska kafbátsins U-132 þann 29. janúar árið 1942 og olíuskipið Shirvan varð fyrir árás þýska kafbátsins U-300 þann 10. nóvember 1944. Grunur um skipsflak vaknaði eftir að eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar TF-Sif flaug yfir svæðið þann 7. júlí sl. og greindi olíubrák með radar flugvélarinnar sem m.a. er notaður við mengunareftirlit.

Olíuskipið Shirvan var nær þrisvar sinnum stærra en Alexander Hamilton eða 6.017 tonn L: 130 / Br: 16 m og 130 m á lengd. Alexander Hamilton var 2.216 tonn og  L: 99,7 / Br: 12,5 m. Veður hafði að sjálfsögðu áhrif á hvert skipin ráku eftir árásirnar en þegar veðurlýsingar eru skoðaðar er talið líklegra að flakið sé Alexander Hamilton því suðaustan átt var á svæðinu þegar Shirvan sökk og er því talið að flakið liggi vestar í Faxaflóa. Meðfylgjandi eru upplýsingar frá Veðurstofu Íslands um veður í janúar 1942 og nóvember 1944.

Um málið eru þó skiptar skoðanir og ekki verður mögulegt að leiðrétta villur eða misskilning fyrr en skoðun með neðansjávarmyndavél staðfestir hvort flakið sé um að ræða.  Meðfylgjandi  er kort þar sem annars vegar má sjá áætlaðar staðsetningar frá kafbátunum  þar sem skipin urðu fyrir árás og hinsvegar hvar Shirvan fannst daginn eftir árásina á floti. Einnig má sjá á kortinu hvar Alexander Hamilton hvolfdi  og var síðan skotinn niður.

210809/HBS