Fréttir

Jólaball starfsmannafélagsins í flugskýli Landhelgisgæslunnar

07. des. 2009

Mánudagur 7. desember 2009

Jólaball starfsmannafélags Landhelgisgæslunnar var haldið á laugardag í flugskýli Landhelgisgæslunnar við Nauthólsvík.
Spennan lá í loftinu þegar dansað var í kring um jólatréð við undirleik Magnúsar Kjartanssonar og söng Elísabetar Ormslev enda var búið að leggja inn beiðni fyrir jólasvein á ballið og beið yngri kynslóðin í ofvæni eftir að einn hinna þrettán bræðra mætti á svæðið.

Þeim varð að ósk sinni, Gáttaþefur Leppalúðason mætti á staðinn með pokann á bakinu og tók Ingó í Veðurguðunum með sér. Skemmtu allar kynslóðir sér konunglega við uppátæki þeirra og skemmtun.

Myndir Gunnar Örn Arnarson.

Jolaball2009_1
Fjölmennur dans í kring um jólatréð

Jolaball2009_2
Gáttaþefur Leppalúðason seig niður úr þyrlunni.............

Jolaball2009_5

................og heilsaði spenntum barnaskara, sumir voru aðeins smeykir

Jolaball2009_4
........."ég kann bara jólalög" - sagði Gáttaþefur, hann hafði ekki áður heyrt
lög Ingós og veðurguðanna

Jolaball2009_3
Börnin sungu eins hátt og þau gátu og erfitt var að dæma hvort stelpurnar
sungu hærra en strákarnir eða hvort það voru strákarnir sem sungu
hærra en stelpurnar.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica