Líf bjargaði þremur mönnum úr hlíðum Hvannadalshnjúks eftir að þeir lentu í snjóflóði
Þriðjudagur 30. maí 2006.
Björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar, Líf, sótti í dag þrjá slasaða menn í suðurhlíðar Hvannadalshnjúks eftir að þeir höfðu lent í snjóflóði milli Dyrhamars og hnjúksins.
Mennirnir voru alls fimm á ferð en þrír þeirra slösuðust. Talið er að einn þeirra hafi fótbrotnað og hinir slasast minna. Mennirnir voru líka þrekaðir eftir að hafa lent í snjóflóðinu og var talið nauðsynlegt að sækja þá hið fyrsta.
Líf var komin á svæðið um kl. 14:30 og gekk ekki vel í fyrstu að komast að slysstaðnum vegna slæms skyggnis.
Það fór svo að lokum að það rofaði til og Líf tókst að komast að mönnunum. Sigmaður í áhöfn Lífar seig niður til þeirra og voru þrír þeirra, þeir slösuðu, fluttir um borð í þyrluna. Hún flaug með mennina til Hafnar í Hornafirði en þar var tekin ákvörðun um að flytja þá með Syn, flugvél Landhelgisgæslunnar, til Reykjavíkur. Flugvélin lendir á Reykjavíkurflugvelli um kl. 18:30.
Dagmar Sigurðardóttir
lögfræðingur/upplýsingaftr.

Úr samhæfingarstöðinni í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð í dag. Fremstir á myndinni eru Benóný Ásgrímsson yfirflugstjóri Landhelgisgæslunnar (LHG), Halldór Benóný Nellett framkvæmdastjóri aðgerðasviðs LHG og Ásgrímur L. Ásgrímsson yfirmaður stjórnstöðvar LHG/vaktstöðvar siglinga að bera saman bækur sínar. Myndina tók Guðmundur Fylkisson aðalvarðstjóri í fjarskiptamiðstöð lögreglunnar.
