Samkoma fyrir Landhelgisgæslumenn og þorskastríðshetjur - 30 ár frá lokum síðasta þorskastríðs
Þriðjudagur 30. maí 2006.
Hafréttarstofnun Íslands stendur fyrir málstofu um þorskastríðin þrjú 1. júní næstkomandi. Sjá dagskrá og frekari upplýsingar á heimasíðu Háskóla Íslands á slóðinni:
http://hi.is/Apps/WebObjects/HI.woa/wa/dp?detail=1006855&name=frettasida
Starfsmannafélag Landhelgisgæslunnar hefur ákveðið að hóa saman Landhelgisgæslumönnum og gömlum þorskastríðshetjum í beinu framhaldi af málstofunni og birtist eftirfarandi auglýsing í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu:
Landhelgisgæslumenn / þorskastríðshetjur
Nú eru liðin 30 ár frá lokum þorskastríðsins síðasta. Af því tilefni ætla gamlar þorskastríðshetjur og núverandi starfsmenn Landhelgisgæslunnar að hittast á Kaffi Reykjavík fimmtudaginn 1. júní milli kl. 15:30 - 17:30 í beinu framhaldi af málstofu Hafréttarstofnunar Íslands um þorskastríðin þrjú. Allir aðrir áhugasamir eru velkomnir.
Starfsmannafélag Landhelgisgæslunnar. 
Úr myndasafni: Guðmundur H. Kjærnested þorskastríðshetja í brúnni á Tý.
