Getur þú hjálpað þegar á reynir?

  • Logo1_112dagurinn2010

112-dagurinn verður haldinn víða um land fimmtudaginn 11. febrúar. Þema dagsins eru forvarnir og aðkoma að vettvangi slysa, veikinda og áfalla. Viðbragðsaðilar koma sjaldnast fyrstir á vettvang slíkra atburða. Oftast kemur venjulegur borgari fyrst að, tilkynnir um atburðinn og veitir fyrstu aðstoð. Þessi fyrstu viðbrögð geta skipt miklu um afdrif fólks og hvernig til tekst með björgun. Þess vegna er mikilvægt að sem flestir kunni skyndihjálp og treysti sér til að veita hana þegar á reynir.

Starfsmönnum Landhelgisgæslunnar hefur frá sl. hausti boðist að fara á námskeið í skyndihjálp sem eru í umsjón Marvins Ingólfssonar, sprengjusérfræðings hjá Landhelgisgæslunni, kafara og sjúkraflutningamanns með meiru. Marvin hlaut sl. haust réttindi til kennslu í skyndihjálp hjá Rauða Krossi Íslands og mun framvegis annast námskeiðin sem eru mismunandi samsett eftir störfum og deildum innan Landhelgisgæslunnar.

Mikilvægt er að  kunna rétt viðbrögð þegar kemur að óhöppum og vera til taks þegar á þarf að halda. Markmið námskeiðanna er að þátttakendur öðlist þekkingu og færni í að tryggja öryggi á slysstað, beita aðferðum skyndihjálpar ásamt því að greina einkenni algengra sjúkdóma og áverka. Ekki má heldur gleyma mikilvægi sálræns stuðnings á slysstað og eftir slys.

Á 112 deginum verður margt gert til að vekja athygli á deginum og efni hans:

  • Gefið verður út 112 blaðið sem dreift verður með Fréttablaðinu 11. febrúar.
  • Kynntar verða niðurstöður Gallup-könnunar um skyndihjálparþekkingu landsmanna.
  • Viðbragðsaðilar kynna fyrir grunnskólabörnum störfs sín sem og veita fræðslu um skyndihjálp og slysavarnir.
  • Viðbragðsaðilar kynna skyndihjálp, slysavarnir og fleira, meðal annars í Smáralind laugardaginn 13. febrúar.
  • Móttaka verður í Skógarhlíðinni þar sem viðurkenningar verða veittar fyrir skyndihjálp og verðlaun veitt í Eldvarnagetrauninni.

112-dagurinn er haldinn í fjölmörgum Evrópulöndum þennan sama dag. Samstarfsaðilar 112-dagsins á Íslandi eru Neyðarlínan, ríkislögreglustjórinn, Brunamálastofnun, slökkviliðin, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Rauði krossinn, Landhelgisgæslan, Barnaverndarstofa, landlæknisembættið, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Flugstoðir.

Á vef Neyðarlínunnar, 112.is, er að finna áhugavert efni fyrir börn og fullorðna sem tengist deginum. Þar er meðal annars hægt að taka próf í skyndihjálp, skoða myndasýningu og margt fleira.