Fréttir

Hvalshræ sprengt í loft upp til að koma í veg fyrir siglingahættu

30. maí 2006

Þriðjudagur 30. maí 2006.

Vaktstöð siglinga/stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk tilkynningu um að hvalshræ væri á reki norðvestur af Gróttu um kl. 15 í gær.  Kom í ljós að þarna var á ferð 6 metra löng hrefna sem skapaði siglingahættu fyrir smærri báta og einnig var hætta á að hræið ræki á fjörur á höfuðborgarsvæðinu þar sem rotnun með tilheyrandi lykt gæti orðið til ama.

Áhöfn björgunarskips Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, Ásgríms S. Björnssonar, lét úr höfn ásamt sprengjusérfræðingum Landhelgisgæslunnar upp úr kl. 18 og hófst þá leitin að hvalshræinu.  Þegar það fannst komu sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar sprengiefni fyrir ofan á hvalnum og sprengdu hann þannig að hann sökk.

Sjá meðfylgjandi mynd af hvalshræinu. Myndina tók Ásgrímur Ásgrímsson yfirmaður vaktstöðvar siglinga/stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar sem jafnframt er skipstjóri á framangreindu björgunarskipi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar.

Dagmar Sigurðardóttir
lögfræðingur/upplýsingaftr.


Hvalshræið var á reki 3.5 sjómílur norðvestur af Gróttu á Seltjarnarnesi.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica