Fréttir

Tveir menn létust í eldsvoða um borð í Akureyrinni - Björgunarþyrlan Líf flutti sex menn til Reykjavíkur

27. maí 2006

Laugardagur 27. maí 2006.

Tveir menn létust í eldsvoða um borð í Akureyrinni EA-110 í dag.
 
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar/vaktstöð siglinga barst neyðarkall frá Akureyrinni EA-110 kl. 14:20 en skipið var þá 75 sjómílur vestur af Látrabjargi.  Áhöfn björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar, Lífar, var þegar kölluð út.  Einnig voru kallaðir út reykkafarar frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins til að fara með þyrlunni. Um borð í Akureyrinni var 18 manna áhöfn.

Líf fór í loftið kl. 14:57 og var komin að Akureyrinni um kl. 16:20.  Sigmaður úr áhöfn Lífar og reykkafarar frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins um borð.  Fokker flugvél Landhelgisgæslunnar, Syn, fylgdi Líf til öryggis en hún fór í loftið kl. 16.  Líf flutti sex menn úr áhöfn Akureyrinnar til Reykjavíkur og voru þeir fluttir á sjúkrahús. Líf lenti í Reykjavík um kl. 19. 

Eftirlitsskip danska sjóhersins, Triton, var einnig beðið um aðstoð og var þyrla þess var send af stað með fleiri slökkviliðsmenn frá Reykjavík.  Þyrla varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli var einnig kölluð út og beið hún á Reykjavíkurflugvelli ef flytja þyrfti fleiri reykkafara. Ekki kom til þess að hún héldi í átt að skipinu. Aðstoð þyrlna varnarliðsins og danska sjóhersins var afturkölluð um kl. 18.

Varðskipið Óðinn lagði strax af stað í átt að skipinu og var komið að Akureyrinni laust eftir  miðnætti. Varðskipið fylgir Akureyrinni til hafnar og er reiknað með að skipin komi til Hafnafjarðar í fyrramálið.

Þrír togarar voru nærri Akureyrinni þegar eldur kom upp og héldu þegar í átt að skipinu. Það eru togararnir Júlíus Geirmundsson sem var næstur, Guðmundur í Nesi og Örvar.  Björgunarbátar á Vestfjörðum og Snæfellsnesi voru settir í viðbragðsstöðu.

Akureyrin EA-110 er 900 brúttólesta skuttogari gerður út af Samherja á Akureyri.
 
Dagmar Sigurðardóttir
lögfræðingur/upplýsingaftr.
 
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica