Breytingar á starfsmannahaldi Landhelgisgæslunnar - Nýtt starfsfólk og tilfærslur
Föstudagur 26. maí 2006.
Ýmsar breytingar eiga sér stað í starfsmannahaldi Landhelgisgæslunnar þessa dagana. Nýlega var tilkynnt ráðningu Höskuldar Ólafsson tæknistjóra í stað Odds Garðarssonar. Ráðið hefur verið í fleiri stöður.
Á næstu vikum tekur Geirþrúður Alfreðsdóttir við starfi flugrekstrarstjóra Landhelgisgæslunnar. Geirþrúður hefur m.a. starfað sem flugstjóri hjá Icelandair, deildarstjóri flugöryggisdeildar Flugmálastjórnar Íslands og formaður rannsóknarnefndar flugslysa. Hún er m.a. með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík, C.S. próf í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands og atvinnuflugmannspróf. Auk þess hefur hún sótt fjölda námskeiða í flugöryggismálum og flugslysarannsóknum.
Halldór Benóný Nellett hefur nú tekið við stöðu framkvæmdastjóra aðgerðasviðs af Kristjáni Þ. Jónssyni en skipherrar Landhelgisgæslunnar skiptast á að gegna þeirri stöðu í tvö ár í senn. Halldór hefur verið skipherra á varðskipinu Ægi og nú tekur Kristján við stjórntaumunum þar um borð. Báðir hafa þeir félagar starfað hjá Landhelgisgæslunni frá unglingsaldri.
Arnbjörg Gunnlaugsdóttir hættir sem bókari Landhelgisgæslunnar og tekur við fulltrúastarfi í flugtæknideild Landhelgisgæslunnar. Í flugdeild er einnig nýráðinn fulltrúi Bergþóra Kristín Grétarsdóttir. Við bókarastarfinu tekur Rannveig Friðriksdóttir.
Auk framangreindra breytinga er verið að ráða flugvirkja, flugmenn og skipstjórnarmenn til Landhelgisgæslunnar vegna aukinna verkefna.
Dagmar Sigurðardóttir
lögfræðingur/upplýsingaftr.
