Fréttir

Slasaður unglingspiltur fluttur með björgunarþyrlunni Líf á sjúkrahús eftir slæmar byltur í Esjunni

25. maí 2006

Fimmtudagur 25. maí 2006.

Áhöfn björgunarþyrlunnar Lífar sótti í dag pilt á 18 ári í hlíðar Esjunnar og flutti hann á Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi.

Pilturinn hafði slasast er hann rann niður langan snjóskafl og gat ekki stöðvað sig áður en hann þeyttist niður í grjótskriðu og lenti þar harkalega í urðinni. Þetta gerðist fyrir neðan Þverfell í Esjunni um 100 metra fyrir neðan hamrana. Pilturinn var á skólaferðalagi með samnemendum sínum og kennurum. Pilturinn kvartaði undan eymslum í mjöðm og mjóbaki. 

Áhöfn björgunarþyrlunnar Lífar var kölluð út kl. 16:05 og var þyrlan komin á slysstað kl. 16:35.  Læknir og sigmaður sigu niður á slysstaðinn þar sem pilturinn beið ásamt ferðafélögum sínum.  Aðrar björgunarsveitir höfðu verið kallaðar út en voru ókomnar.

Læknir og sigmaður gengu frá piltinum á bakbretti og í börur með aðstoð annarra ferðafélaga hans og var hann hífður beint af slysstað upp í þyrluna. Slysstaðurinn var í erfiðri skriðu og því ekki hægt með öruggu móti að færa hann þaðan fyrir flutning. Thorben Lund yfirstýrimaður og sigmaður í þessari ferð sagði allt hafa gengið vel þrátt fyrir erfiðar aðstæður.

Þyrlan lenti við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi um kl. 17:15:

Dagmar Sigurðardóttir
lögfræðingur/upplýsingaftr.


Úr myndasafni. Björgunaræfing á Líf.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica