Fluttur með þyrlu á sjúkrahús eftir slys í Úthlíð í Biskupstungum
Miðvikudagur 24. maí 2006
Áhöfn björgunarþyrlunnar Lífar var kölluð út með bráðaútkalli kl. 18:20 eftir að tilkynnt hafði verið um slys í Úthlíð. Veggur hafði fallið á tvo menn og var óttast að annar þeirra væri mjaðmagrindarbrotinn.
Flugvirki og flugmaður voru staddir úti á flugvelli þegar kallið kom og voru búnir að setja þyrluna í gang þegar stýrimaður og læknir komu á staðinn þannig að þyrlan gat farið í loftið kl. 18:30 eða 10 mínútum eftir útkall.
Þyrlan lenti svo í Úthlíð um kl. 18:54 þar sem slasaði maðurinn beið í sjúkrabíl. Búið var að setja hinn slasaða á bakbretti og í börur og undirbúa hann undir flugið þegar þyrlan kom og gat hún því haldið aftur til baka til Reykjavíkur kl. 19:02.
Líf lenti við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi um kl. 19:20.
Dagmar Sigurðardóttir
lögfræðingur/upplýsingaftr.
