Landhelgisgæslan kemur í veg fyrir olíukaup sjóræningja
Miðvikudagur 24. maí 2006.
Eins og kunnugt er hafa svokallaðir sjóræningjar verið að veiðum á úthafskarfaslóð við lögsögumörkin á Reykjaneshrygg. Þar veiða þeir án kvóta og leyfis Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðsins (NEAFC) sem fer með fiskveiðistjórn á svæðinu. Landhelgisgæslan framfylgir skuldbindingum íslenska ríkisins samkvæmt aðildarsamningi Íslands að ráðinu til að fara með eftirlit á svæðinu.
Í fyrra vakti mikla athygli er Landhelgisgæslan náði myndum af flutningaskipinu Sunny Jane er það tók við afla úr einu sjóræningjaskipinu. Það varð til þess að Sunny Jane fór á svarta listann hjá NEAFC og lenti m.a. í vandræðum við að koma aflanum frá sér og fá aðra þjónustu enda er bannað að veita skipum á svarta listanum þjónustu í aðildarríkjum NEAFC.
Nýlega kom varðskipið Ægir að olíuskipi sem gerði sig líklegt til að selja einu af sjóræningjaskipunum á Reykjaneshrygg olíu. Skipherra varðskipsins kallaði upp skipstjóra olíuskipsins og var honum gerð grein fyrir því að á svæðinu væru nokkur skip að veiðum án kvóta og þau væru á svarta listanum hjá NEAFC. Skipstjóranum var jafnframt tilkynnt að ef hann seldi sjóræningjaskipi olíu myndi skip hans einnig lenda á svarta listanum því að bannað væri að veita þessum skipum þjónustu. Það gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir skipið og útgerð þess. Hann virtist ekki vita að skipin hefðu verið að veiðum á svæðinu án kvóta. Nöfn allra sjóræningjaskipanna voru síðan lesin fyrir skipstjóra olíuskipsins. Sagðist skipstjórinn ætla að ráðfæra sig við útgerðina.
Þegar hér var komið sögu átti sjóræningjaskipið skammt ófarið að olíuskipinu til olíutöku en olíuskipið hætti við að selja því olíu. Næstu daga fylgdist varðskipið grannt með ferðum olíuskipsins og kom í ljós að það átti eingöngu viðskipti við lögleg skip á svæðinu. Þremur dögum seinna sást olíuskipið stefna til suðausturs á fullri ferð. Skipherra varðskipsins hafði samband við skipstjóra olíuskipsins og sagði hann að eigendur olíuskipsins hefðu tekið ákvörðun um að afgreiða ekki sjóræningjaskipin.
Aðgerðir varðskipsins báru tilætlaðan árangur í þetta skiptið hvað sem síðar verður. Eflaust munu sjóræningjaskipin gera frekari tilraunir til að afla sér eldsneytis.
Varðskip Landhelgisgæslunnar og flugvélin Syn hafa aflað mikilvægra upplýsinga fyrir Norðaustur-Atlantshafsráðið í eftirlitsferðum um svæðið, m.a. náð ljósmyndum af brotum og gert skýrslur um athafnir sjóræningjaskipa. Þessi gögn eru síðan lögð til grundvallar þegar skip eru sett á svarta lista NEAFC.
Landhelgisgæslan reynir eftir fremsta megni að hafa skip á svæðinu á meðan á karfaveiðum stendur og hefur einnig eftirlit úr lofti. Fleiri þjóðir senda þangað eftirlitsskip og hafa þau góða samvinnu. 
Dolphin á leið til olíuskipsins. Mynd: Halldór Benóný Nellett.
Dolphin siglir í burtu frá olíuskipinu án þess að hafa fengið þjónustu. Mynd: Halldór Benóný Nellett.
Dagmar Sigurðardóttir lögfræðingur/upplýsingaftr.
Halldór Benóný Nellett framkvæmdastjóri aðgerðasviðs.
