Fréttir

Greenpeace og Gæslan í samkrulli?

24. maí 2006

Miðvikudagur 24. maí 2006.

Á fréttavefnum http://www.skip.is er vitnað í frétt á vefnum http://fishupdate.com í dag þar sem meðal annars er fjallað um sjóræningjaveiðar á Reykjaneshrygg og fleira. Eins og fréttin hefur verið þýdd á skip.is lítur út fyrir að fulltrúar Greenpeace hafi verið um borð í varðskipi Landhelgisgæslunnar en það er ekki rétt. Landhelgisgæslan hefur í dag fengið fjölmargar fyrirspurnir vegna fréttarinnar eins og hún birtist á skip.is.

 

Í fréttinni á fishupdate.com segir að Greenpeace hafi fyrir fyrir viku síðan ásamt íslensku Landhelgisgæslunni orðið vitni að veiðum 64 skipa sem voru að veiðum á alþjóðlega hafsvæðinu á Reykjaneshrygg í Norður-Atlantshafi.  Svæði sem sé þekkt fyrir viðkvæma kaldsjávarkórala.  Átta skipanna hafi verið á lista yfir sjóræningjaskip og þar á meðal hafi verið fimm skip sem Greenpeace hefur verið að fylgjast með.  Sum skipin hafi haft bæði flottroll og botntroll um borð.  Botntroll séu afskaplega skaðleg veiðarfæri sem sérfræðingar séu sammála um að eyðileggi hafsbotninn og hið viðkvæma og brothætta vistkerfi sjávarlífdýra sem þar þrífst.

 

Rétt er að talsmaður Greenpeace í Noregi, Martin Norman, hefur verið í sambandi við Landhelgisgæsluna undanfarnar vikur vegna frétta frá stofnuninni um sjóræningjaveiðar. Hann hefur fengið allar sömu upplýsingar og aðrir fréttamiðlar.  Myndir hafa mikið sönnunargildi varðandi framferði sjóræningjaskipa á Reykjaneshrygg og hafa ljósvakamiðlar og aðrir fjölmiðlar sýnt þessu ástandi á Reykjaneshrygg verðskuldaða athygli. Fulltrúi Greenpeace fékk að fljóta með í eftirlitsflug út á Reykjaneshrygg ásamt fulltrúum RUV og NFS sem tóku kvikmyndir af sjóræningjaskipum og öðrum skipum sem voru að veiðum á hryggnum fyrir viku síðan.

 

Greenpeace hefur beitt umdeildum aðferðum í aðgerðum sínum  gagnvart stjórnvöldum og útgerðum og dregur sínar ályktanir af staðreyndum sem Landhelgisgæslunni eru óviðkomandi.  Þar á meðal eru ályktanir Greenpeace varðandi kórala og veiðarfæri.  

Í þessu tilfelli var ekki talið að það gæti skaðað að leyfa fulltrúa Greenpeace að sjá með eigin augum það sem fram fer á Reykjaneshrygg þar sem þess var sérstaklega óskað og enda vill svo til að það eru sameiginlegir hagsmunir Greenpeace og Íslands að komið verði í veg fyrir sjóræningjaveiðar á svæðinu.  Þess ber að geta að Landhelgisgæslan hefur ekki séð ástæðu til að hafa áhyggjur af kaldsjávarkórölum á Reykjaneshrygg og áhöfn eftirlitsflugvélarinnar Synjar varð ekki vör við að botntroll væru notuð á svæðinu enda er augljóst að botntroll eru ekki notuð á 2000 metra dýpi til veiða á úthafskarfa sem heldur sig á 6-800 metra dýpi.

 

Dagmar Sigurðardóttir

lögfræðingur/upplýsingaftr.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica