TF-GNÁ sækir veikan mann til Vestmannaeyja

  • GNA3_BaldurSveins

Laugardagur 1. maí 2010

Landhelgisgæslunni barst í nótt kl. 03:33 aðstoðarbeiðni, í gegnum Neyðarlínuna, frá lækni í Vestmannaeyjum. Um var að ræða veikan mann sem flytja þurfti strax til Reykjavíkur.  Eftir samráð við þyrlulækni  var þyrluvakt kölluð út.   Nokkur bið varð á flugtaki þar sem beðið var eftir að ástand sjúklings yrði stöðugra fyrir flutning.

Fór þyrla Landhelgisgæslunnar TF-GNÁ í loftið kl. 0521 og var lent í Eyjum kl. 05:48  þar sem sjúklingur var undirbúinn og síðan fluttur yfir í þyrluna. Flugtak þaðan kl. 06:35 og lent við flugskýli LHG kl. 07:06  þar sem sjúkrabíll beið og flutti sjúkling á spítala. Báðar sjúkraflutningavélar Flugfélags Vestmannaeyja eru óflughæfar yfir helgina og var því leitað til Landhelgisgæslunnar.