Nýr tæknistjóri tekur til starfa hjá Landhelgisgæslunni
Þriðjudagur 23. maí 2006.Í gær hóf Höskuldur Ólafsson störf sem tæknistjóri flugdeildar Landhelgisgæslu Íslands og er hann boðinn velkominn til starfa. Höskuldur hefur síðustu árin starfað hjá Flugmálastjórn en áður starfaði hann hjá Íslandsflugi. Hann hefur víðtæka reynslu af flugvirkjun og stjórnun og þekkir mjög vel til þeirra krafna sem gerðar eru varðandi viðhald loftfara.
Meðal fyrstu verkefna Höskuldar er að ráða fleiri flugvirkja til starfa í deildinni í samráði við framkvæmdastjóra rekstrarsviðs en verkefni flugtæknideildar Landhelgisgæslunnar munu aukast verulega í kjölfar leigu á tveimur þyrlum sem dómsmálaráðuneytið tilkynnti um í dag.
Dagmar Sigurðardóttir
lögfræðingur/upplýsingaftr.

Höskuldur Ólafsson tæknistjóri Landhelgisgæslu Íslands.
