Áður óþekktur neðansjávardrangur finnst í grennd við Stórhöfða - mikilvægi sjómælinga og sjókortagerðar
Þriðjudagur 23. maí 2006.
Sjómælingasvið Landhelgisgæslunnar sér bæði um sjómælingar og sjókortagerð af hafinu umhverfis Ísland. Þetta er afar mikilvægur þáttur í öryggismálum sjófarenda því að nákvæm sjókort eru grundvöllur öruggra siglinga. Nauðsyn á nákvæmum sjókortum verður meiri ár frá ári því að sífellt stærri og djúpristari skip sigla við strendur landsins.
Landhelgisgæslan hefur haft fjölgeislamæli (multibeam) til umráða undanfarin ár og hefur það flýtt talsvert fyrir mælingum á grunnsævi. Er áhöfn Baldurs var við mælingar í fyrstu mælingaferð sumarsins með fjölgeislamæli út af Stórhöfða sl. laugardag fannst áður óþekkt grunn með 9.8 metra dýpi.
Eldri dýptarmælingar sem eru frá árinu 1961 sýndu 22 og 23 metra dýpi á svæðinu. Tveir kunnir Vestmannaeyingar þeir Friðrik Ásmundsson fyrrverandi skólastjóri Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum og Guðjón Ármann Eyjólfsson fyrrverandi skólastjóri Stýrimannaskólans í Reykjavík hafa ekki haft spurnir af þessum neðansjávardrangi.
Áætlað er að áhöfn Baldurs verði við mælingar fram yfir mánaðarmót við Vestmannaeyjar en veður hefur hamlað mælingum síðustu daga.
Dagmar Sigurðardóttir lögfræðingur/upplýsingaftr.
Hilmar Helgason framkvæmdastjóri sjómælingasviðs.
Kort: sjómælingasvið LHG.
