Lávarðar Landhelgisgæslunnar útskrifast úr varðskipadeild
Mánudagur 22. maí 2006.
Fimm skipstjórnarmenn frá Landhelgisgæslunni útskrifuðust af 4. stigi (varðskipadeild) skipstjórnarsviðs Fjöltækniskólans síðastliðinn laugardag. Einn þeirra útskrifaðist sem stúdent um leið.
Þetta telst til tíðinda því að nú eru liðin 12 ár frá síðustu útskrift þessarar deildar en 4. stigið hefur ekki verið haldið síðan þá.
Auk skipstjórnarmanna Landhelgisgæslunnar sem útskrifuðust sem lávarðar (Lordar), eins og það er kallað, tóku þrír utangæslumenn þetta próf og tveir þeirra útskrifuðust sem stúdentar um leið.
Landhelgisgæslan fagnar þessum áfanga enda var orðin brýn þörf á fleiri foringjaefnum í flota Gæslunnar. Mikilvægt er fyrir Landhelgisgæsluna að skipherrar séu vel menntaðir og vel að sér varðandi nýjustu tækni í þeirri öru þróun sem á sér stað og tengist starfsemi Landhelgisgæslu Íslands í dag.
Sjá frásögn af námi Lávarðanna í Fjöltækniskólanum á heimasíðu Landhelgisgæslunnar á slóðinni:
/displayer.asp?cat_id=4&module_id=220&element_id=2839
Meðfylgjandi myndir tók Jón Kr. Friðgeirsson bryti á varðskipinu Tý (nú Óðni) er boð fyrir lávarðana var haldið um borð í Óðni í framhaldi af útskriftinni á laugardaginn.
Dagmar Sigurðardóttir
lögfræðingur/upplýsingaftr.
Lávarðarnir ásamt skipherranum á Óðni, þar sem útskriftarveislan var haldin, og forstjóranum. Frá vinstri: Einar H. Valsson skipherra, Pálmi Jónsson (einnig stúdent), Jón Páll Ásgeirsson, Guðmundur Rúnar Jónsson, Gunnar Örn Arnarson,
Lávarðarnir fimm og þar með skipherraefni Landhelgisgæslunnar: Pálmi Jónsson, Jón Páll Ásgeirsson, Guðmundur Rúnar Jónsson, Gunnar Örn Arnarson og
