TF-GNA í sjúkraflug á Reykjaneshrygg

Föstudagur 18. júní 2010

Björgunarmiðstöðin í Stavanger óskaði kl. 12:46 eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar við að sækja 26 ára konu, sem talin var vera með botnlangabólgu, um borð í norska togarann Langvin. Togarinn er staddur að úthafskarfaveiðum á Reykjaneshrygg eða 207 sjómílur frá Reykjanesi. Eftir samráð við þyrlulækni Landhelgisgæslunnar var ákveðið að sækja konuna. Togarinn hífði veiðarfæri og hélt á fullri ferð með stefnu á Reykjanes.

Þar sem ekki var sem stendur mögulegt fyrir þyrlu Landhelgisgæslunnar að fara lengra en 150 sjómílur frá ströndu var farið í loftið kl. 17:45. Komið var að togaranum rétt fyrir kl. 20 þegar hann var staddur 145 sml SV af Reykjanesi. Var konan hífð á börum um borð í þyrluna. Lenti var við Landspítalann í Fossvogi kl. 21:23.

Mynd Baldur Sveinsson