Fréttir

Mikill áhugi á störfum hjá Landhelgisgæslunni

17. maí 2006

Miðvikudagur 17. maí 2006.

Nýverið auglýsti Landhelgisgæslan laus störf til umsóknar vegna aukinna umsvifa í rekstri í kjölfar ákvörðunar ríkisstjórnarinnar um að fjölga þyrlum og þannig efla þyrlusveit Landhelgisgæslunnar samkvæmt tillögu Björns Bjarnasonar dóms- og kirkjumálaráðherra.

Auglýst var eftir flugrekstrarstjóra, þyrluflugmönnum, flugvirkjum, stýrimönnum og starfsmanni á lager og rann umsóknarfrestur út þann 8. maí sl.  Alls bárust Landhelgisgæslunni um 120 umsóknir um þessi störf.  Áður hafði verið auglýst starf skrifstofumanns á flugvelli og bárust 30 umsóknir um það starf.

 

Tæplega 20 manns sóttu um stöðu flugrekstrarstjóra en það starf felur í sér daglega stjórnun og ábyrgð á flugrekstri Landhelgisgæslunnar.

 

Rúmlega 30 umsóknir bárust um störf þyrluflugmanna en þar er um að ræða full störf á vöktum.  Ríflega 60 umsóknir bárust vegna starfa í flugtæknideild, en auglýst voru laus til umsóknar störf flugvirkja/flugvirkjanema, flugvirkja í viðhaldsskipulagningu og starfsmanns á varahlutalager.  Af þessum umsóknum voru rúmlega 50 vegna flugvirkja/flugvirkjanema en gert var ráð fyrir að viðkomandi umsækjendur væru jafnframt reiðubúnir að gegna starfi spilmanns á þyrlum og stæðust þannig kröfur Landhelgisgæslunnar um þjálfun, líkamlegt og andlegt atgervi.

 

Þá bárust 10 umsóknir um stöðu stýrimanna.  Var gert ráð fyrir að þeir umsækjendur gætu jafnt sinnt störfum um borð í varðskipum, í flugdeild eða öðrum deildum Landhelgisgæslunnar og sem stýrimenn/sigmenn í þyrluáhöfn.  Þurfa þeir þannig að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um þjálfun, líkamlegt og andlegt atgervi.

 

Þessa dagana á sér stað vinna í því að yfirfara umsóknir og boða til viðtala sem og önnur úrvinnsluvinna.  Um er að ræða nokkuð langt og strangt ferli en gert er ráð fyrir að því ljúki fyrir mánaðamót og að gengið verði frá ráðningum í kjölfar þess. 

Sólmundur Már Jónsson
framkvæmdastjóri rekstrarsviðs


Úr myndasafni.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica