Umferðareftirlit úr lofti í Húnavatnssýslum

Föstudagur 16. júlí 2010

Um helgina mun Landhelgisgæslan aðstoða lögregluna á Blönduósi við umferðareftirlit á þjóðvegum og hálendi umdæmisins. Fylgst verður úr lofti með ökuhraða og aksturslagi ökumanna og akstri vélknúinna farartækja um hálendið. Markmiðið er að efla öryggi vegfarenda og vernda náttúru umdæmisins fyrir utanvegaakstri. Um er að ræða samstarfsverkefni embættanna í samráði við ríkislögreglustjóra.

Landhelgisgæslan mun einnig halda björgunaræfingu með björgunarsveitum Landsbjargar við höfnina á Blönduósi, laugardaginn 17. júlí nk., kl. 16:15 og mun björgunarskipið Húnabjörg frá Skagaströnd og björgunarbátur frá Hvammstanga taka þátt í æfingunni. Þyrlan mun einnig sinna öðrum verkefnum fyrir björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar.

GNA3_BaldurSveins

Mynd Baldur Sveinsson