Nákvæmari sjókort geta stuðlað að hagkvæmari veiðum
Þriðjudagur 16. maí 2006.
Fundur Norrænu sjómælingastofnanna (Nordic
Helstu verkefni Svíþjóðar, Danmerkur og Finnlands eru dýptarmælingar og sjókortagerð í Eystrasalti samkvæmt áætlun er nefnist HELCOM (The Helsinki Commission). HELCOM er samstarfsverkefni allra landa sem liggja að Eystrasalti og lýtur að öllum þáttum öruggra siglinga og umhverfisverndar.
Norðmenn eru að endurmæla og kortleggja allar helstu siglingaleiðir með ströndum Noregs en verkefnið hófst árið 2000 og er áætlað að því ljúki árið 2008. Norðmenn hafa einnig ákveðið að ráðast í viðamikið verkefni sem þeir kalla MAREANO og lýtur að fjölgeislamælingum með mikilli upplausn (high-resolution) við Lofoten og syðri hluta Barentshafs á svæði sem þekur 142 000 km2.
MAREANO er samstarfsverkefni nokkurra norskra stofnana og varðar margskonar rannsóknir á sjávarbotninum. MAREANO verkefnið svipar til SeaMap tilraunaverkefnis sem Kanadamenn gerðu á árunum 1998 og 1999 á German Bank, Nova Scotia. Eftir að fjölgeislamælingarnar höfðu verið gerðar kom í ljós að fiskibáturinn Anne S. Pierce sparaði umtalsverða fjármuni og tíma við veiðar á sínum kvóta. Við veiðarnar 1999 var notast við mynd (imagery) sem gerð var eftir fjölgeislamælingum en myndin var sett sem bakgrunnur í sjókortið. Niðurstöður tilraunarinnar sjást í töflunni hér að neðan:
Nágrannaþjóðir okkar eru einnig að vinna að rannsóknum og áhættumati vegna áætlunar um aukna skipaumferð um Norður-Íshafið og Grænlandssund. Norðmenn óttast mjög aukna skipaumferð við norður Noreg og Danir undirbúa aukna umferð um Grænlandssund.
Hilmar Helgason
