Myndir frá veru TF-SIF í Louisiana
Mánudagur 30. ágúst 2010
Eins og komið hefur fram var flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF fengin til að leysa af flugvél samgöngustofnunar Kanada við mengunareftirlit á Mexíkóflóa í fjórar vikur frá miðjum júlí. Var TF-SIF staðsett í borginni Houma í Louisiana þar sem bandaríska strandgæslan og BP eru með stjórnstöð fyrir aðgerðir á svæðinu.
Fengu starfsmenn Landhelgisgæslunnar í verkefninu mjög dýrmæta reynslu á sviði mengunareftirlits og auðlindavörslu en verkefni TF-SIF fólst fyrst og fremst í að nota SLAR radar vélarinnar (side looking infrared radar) til að kortleggja olíumengun á svæðinu suður af New Orleans og meta hvar olían væri í hreinsanlegu magni . Voru öll gögn send sameiginlegri vettvangsstjórnstöð þar sem reglulega voru haldnir stöðufundir og næstu skref ákveðin.
Að sögn starfsmanna var mjög mikill hiti í Louisiana meðan á dvöl þeirra stór, fór hitastigið jafnan upp fyrir 40 gráður og ekki bætti úr skák að rakinn var jafnan um 90-100%. Hélt fólks sig því að mestu innan dyra.
Hér má sjá nokkrar myndir sem starfsmenn Landhelgisgæslunnar tóku meðan á dvölinni stóð.
CASA eftirlitsflugvél bandarísku strandgæslunnar á flugvellinum. Eru þessar flugvélar ekki búnar hliðarratsjá (SLAR) en þær voru hinsvegar notaðar í sjónrænt eftirlit.
Kafteinn Ed Stanton yfirmaður bandarísku strandgæslunnar á New Orleans
svæðinu heilsar Hafsteini Heiðarssyni flugstjóra og Marion Herreira, flugmanni.
Stanton er mikill Íslandsvinur og hefur nokkrum sinnum komið hingað til lands á undanförnum ár til fundar og samstarfs við við Landhelgisgæsluna.
Var Stanton og samstarfsfólk leyst út með gjöfum til minningar um veru LHG
á svæðinu.
Á hótelinu var flugáhöfn TF-SIF með flugumsjónaraðstöðu.
Myndatökur voru ekki leyfðar í stjórnstöðinni sem var til staðar í menntasetri BP í Lousiana.
Stýrimenn klárir fyrir brottför.Fegnir að losna úr miklum hita og 100% raka.
Hreyflar ræstir.Sést í Sigurjón Sigurgeirsson flugvirkja.
Búið að loka vélinni.
TF-SIF í flugtaksbruni.
Myndir Ásgrímur L. Ásgrímsson.