Fréttir

Leit að týndum manni á Möðrudalsöræfum

15. maí 2006

Mánudagur 15. maí 2006.

Þyrla danska sjóhersins frá eftirlitsskipinu Triton hélt af stað norður í land kl. 20:50 í gærkvöldi vegna leitar að ungum manni sem hafði verið týndur á Möðrudalsöræfum frá því kl. 1 nóttina áður. Yfirstýrimaður frá flugdeild Landhelgisgæslunnar fór með þyrlunni norður til að aðstoða við leitina.  Er þyrlan kom norður var strax hafist handa við að skipuleggja leitina en þegar til kom var ekki hægt að fljúga þyrlu á svæðinu vegna snjókomu og lélegs skyggnis.

Flugvél Landhelgisgæslunnar, Syn, flaug einnig norður kl. 6:20 í morgun með 20 björgunarsveitarmenn frá Reykjavík og leitarhund.

Tritonþyrlan fór í loftið frá Akureyri milli kl. 8 og 9 í morgun og hóf leit.  Þyrla Varnarliðsins var síðan ræst út eftir hádegið og fór í loftið um kl. 14:50.  Hún var komin á leitarsvæðið um fjögurleytið og er þar enn. 

Um klukkan 14 kom í ljós að eldsneytisbíll sem koma átti með eldsneyti fyrir dönsku þyrluna bilaði á leiðinni til Grímsstaða og sá því Varnarliðsþyrlan ein um leitina eftir það. Landhelgisgæslan og Olíufélagið Skeljungur hafa gert ráðstafanir til að flytja eldsneyti fyrir þyrluna á svæðið.

Syn, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, er væntanleg til Húsavíkurflugvallar um kl. 17:30 með fleiri björgunarsveitarmenn til leitar og munu björgunarsveitarmenn, sem fóru með vélinni í morgun, geta flogið með henni til baka.

Dagmar Sigurðardóttir
lögfræðingur/upplýsingaftr.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica