Kynning á starfsemi Vaktstöðvar siglinga fyrir starfsmenn Landhelgisgæslunnar
Mánudagur 15. maí 2006.
Vaktstöð siglinga var með opið hús fyrir starfsmenn Landhelgisgæslunnar síðastliðinn föstudag en þá var liðið ár frá því að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar flutti frá Seljavegi 32 yfir í Skógarhlíð 14 og sameinaðist Tilkynningarskyldunni og fl. í Vaktstöð siglinga í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð. Önnur starfsemi Landhelgisgæslunnar, þ.á.m. skrifstofur og sjómælingasvið, fluttu ekki fyrr en í janúar á þessu ári í Björgunarmiðstöðina.
Starfsmenn Landhelgisgæslunnar mættu vel á opna húsið og kynntu sér starfsemi Vaktstöðvarinnar eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem Jón Páll Ásgeirsson stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni tók af þessu tilefni.
Landhelgisgæslan fer með faglega stjórnun í Vaktstöð siglinga og rekur stjórnstöð sína úr húsakynnum Vaktstöðvarinnar. Allir starfsmenn Vaktstöðvar siglinga eru starfsmenn Landhelgisgæslunnar. Neyðarlínan sér hins vegar að hluta til um tæknilegan rekstur stöðvarinnar, húsnæðismál og fjármál. Þetta fyrirkomulag er samkvæmt þjónustusamningi við Siglingastofnun um rekstur Vaktstöðvar siglinga.
Sjálfvirka tilkynningarskyldan, sem áður var hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu, er nú starfrækt innan Vaktstöðvar siglinga samhliða fjareftirliti Landhelgisgæslunnar með fiskiskipium og öðrum fjölbreytilegum verkefnum sem Landhelgisgæslan hefur.
Dagmar Sigurðardóttir
lögfræðingur/upplýsingaftr.

Ásgrímur L. Ásgrímsson yfirmaður Vaktstöðvar siglinga, Þórður Gíslason sjókortagerðarmaður og Pálmi Jónsson stýrimaður á varðskipinu Ægi fylgjast með kynningu á sjálfvirku tilkynningarskyldunni.
Bergþór Atlason varðstjóri í Vaktstöð siglinga sýnir Árna Vésteinssyni deildarstjóra sjókortadeildar, Níelsi Finsen verkefnisstjóra rafrænna sjókorta og Sigríði Rögnu Sverrisdóttur sjókortagerðarmanni fjarskiptahluta stöðvarinnar. Í bakgrunni glittir í Benóný Ásgrímsson yfirflugstjóra og Sigurð Ásgrímsson fagstjóra sprengjudeildar með meiru.
