Bilun í drifbúnaði Lífar, stærri björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar
Mánudagur 15. maí 2006.
Drifbúnaður stærri björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar, Lífar, bilaði síðastliðinn föstudag. Áætlað er að vélin geti orðið flughæf næstkomandi miðvikudag.
Björgunarþyrlan Sif er í
Viðhald á þyrlum er fyrirfram ákveðið að jafnaði út frá flugtímum og kröfum framleiðanda sem setur vissar öryggiskröfur. Þessar öryggiskröfur eiga að draga úr hættu á slysum. Hugmyndin er að reglulegt viðhald samkvæmt fyrirfram ákveðnum stöðlum dragi úr líkum á að hlutirnir bili en þó er aldrei hægt að koma alveg í veg fyrir bilanir.
Vegna þessa hefur Landhelgisgæslan notið aðstoðar þyrlu danska sjóhersins við leit um helgina en Landhelgisgæslan er með gagnkvæman samning við danska sjóherinn um aðstoð við leit og björgun.
Dagmar Sigurðardóttir
lögfræðingur/upplýsingaftr.
