Síðasta fallbyssuæfingin á varðskipinu Óðni
Föstudagur 12. maí 2006.
Eins og flestir vita eru varðskip Landhelgisgæslunnar búin fallbyssum enda fátt annað sem getur fengið erlenda skipstjóra sem stunda ólöglega starfsemi á hafinu til að hlýða nema ógnin sem stafar frá þeim. Vegna þessa þurfa varðskipsmenn að halda sér í þjálfun og æfa sig reglulega í að nota fallbyssurnar.
Landhelgisgæslan mun að öllum líkindum hætta rekstri Óðins í núverandi mynd á þessu ári og því má búast við að fallbyssuæfing nú í byrjun mánaðar hafi verið sú síðasta á varðskipinu Óðni.
Með æfingunni þjálfaði vopnasveit varðskipsins sig í notkun fallbyssunnar og um leið lagði fagstjóri sprengjusveitar Landhelgisgæslunnar, sem hélt æfinguna, mat á hæfni starfsmanna til að beita henni. Einnig gafst nemendum á 4. stigi skipstjórnarsviðs Fjöltækniskólans, svokölluðum lávörðum, tækifæri til að fylgjast með æfingunni.
Skipherrann á varðskipinu Óðni, Einar H. Valsson, var ánægður með hvernig æfinginn heppnaðist en m.a. var farið yfir hvaða varúðarráðstafanir þarf að gera þegar hleypt er af svo öflugu vopni.<
Myndirnar tók Jón Páll Ásgeirsson stýrimaður.
Adrian King
fagstjóri sprengjusveitar

