Nordred- æfingin
Mynd: Hluti æfingastjórnar Nordred að störfum í húsnæði Almannavarnadeildar Ríkislögreglustjórans í Skógarhlíð 14, Reykjavík. Frá vinstri: Tor Eivind Moss yfirmaður í björgunarmiðstöðinni í Stavangri í Noregi en hann hafði yfirumsjón með æfingunni fyrir hönd samnorrænu samtakanna Nordred, Auðunn F. Kristinsson yfirstýrimaður hjá Landhelgisgæslunni. Hann lék ýmis hlutverk í æfingunni, þ.á.m. sem skipherra varðskips á vettvangi. Leikur hans var sannfærandi að sögn félaga hans sem tóku þátt í æfingunni, Einar Sigurgeirsson varðstjóri í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar/vaktstöð siglinga en hann bar hitann og þungann af skipulagi æfingarinnar af hálfu Landhelgisgæslunnar og að síðustu Bára Benediktsdóttir hjúkrunarfræðingur sem kom að skipulagi æfingarinnar af hálfu Landlæknisembættisins.
Kristján Þ. Jónsson framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar í samhæfingarstöðinni í Skógarhlíð. Hlutverk hans var að stjórna að gerðum Landhelgisgæslunnar.
Harald Holsvik varðstjóri í stjórnstöð LHG/vaktstöð siglinga og Hjalti Sæmundsson aðalvarðstjóri í stjórnstöð LHG/vaktstöð siglinga en þeir voru báðir á fullu að samhæfa aðgerðir Landhelgisgæslunnar á starfsstöðvum LHG/vaktstöðvar siglinga í samhæfingarstöðinni.
