Gumbi frá Malaví í starfsnámi á sjómælingasviði Landhelgisgæslunnar
Mánudagur 8. maí 2006.
Gumbi Reuben Tendai Gumbi eða GG, sem hann segir vini sína kalla sig, hefur verið við nám og störf hjá Landhelgisgæslunni í tvær vikur en fór heim á leið í gær sunnudag. Gumbi, sem er 27 ára tæknifræðingur frá Malaví, ferðaðist hingað norður eftir til að njóta leiðsagnar á sjómælingasviði Landhelgisgæslunnar í sjókortagerð og notkun tölvubúnaðar sviðsins við það verk.
Ferðalag Gumba til Íslands tengist samstarfsverkefni Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og Mælinga- og kortagerðarstofnunar Malaví sem hófst árið 2001 og lauk formlega í árbyrjun 2005. Samkvæmt samningnum annaðist Landhelgisgæslan faglega ráðgjöf og tækniaðstoð í kortlagningu á Malavívatni en framkvæmdin var í höndun Mælingastofnunar Malaví með fjárstuðningi og undir eftirliti frá Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Samningurinn við Landhelgisgæsluna um tækniaðstoð og faglega ráðgjöf var framlengdur til tveggja ára.
Gumbi hafði ekki áður ferðast utan síns heimalands. Hann hafði á orði að sér þætti bílamergðin í Reykjavík ótrúleg, í ekki fjölmennari borg. Hann hafði heldur aldrei ferðast með flugvél og að sjálfsögðu aldrei fyrr séð snjó og var ánægður með dvölina á Íslandi.
deildarstjóri sjókortadeildar LHG.

Á myndinni er Gumbi ásamt Árna Þór Vésteinssyni deildarstjóra sjókortadeildar en þeir notuðu vikurnar tvær til að spá í framsetningu dýptarupplýsinga og kortagerð af Malavívatni. Mynd DS.
