Þátttaka Landhelgisgæslunnar í Nordred æfingunni
Sunnudagur 7. maí 2006.
Fyrir helgina lauk viðamikilli norrænni björgunaræfingu sem Landhelgisgæslan tók virkan þátt í en æfingin er haldin á vegum Nordred - norræns samstarfs um björgunarmálefni:
Þema æfingarinnar var slys um borð í 86 þúsund tonna norsku skemmtiferðaskipi með um 1000 farþega og 700 manna áhöfn um borð. Farþegarnir eru frá Norðurlöndunum en einnig frá öðrum ríkjum Evrópu, Norður-Ameríku og Asíu. Þegar skipið er statt skammt norður af Vestfjörðum verður sprenging í aðaleldhúsi þegar farþegar og áhöfn snæða morgunverð. Fólk deyr og slasast og margir björgunaraðilar frá Íslandi koma til hjálpar.
Á heimasíðu Almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra er fjallað um þetta norræna samstarf en þar segir m.a.:
Almannavarnadeild ríkislögreglustjórans fer með samstarf í leitar- og björgunarmálum er leiðir af aðild Íslands að Norræna björgunarsamningnum (NORDRED ramavtalen) sem í daglegu máli gengur undir nafninu NORDRED. Samnorræn framkvæmdanefnd (NORDRED kontaktgruppen) er vettvangur reglulegra funda fulltrúa Norðurlandanna og stýrir samstarfinu.
Þjóðirnar skiptast á um formennsku til þriggja ára í senn og lýkur hverju tímabili með því að haldin er norræn björgunarráðstefna og gjarnan æfing tengd henni. Ísland hefur farið með formennsku í NORDRED frá því í maí 2003 og (skilaði henni til Finna á ráðstefnunni og æfingunni nú í byrjun maí.) Meginmarkmið ráðstefnunnar er að styrkja samstarf og samskipti milli norrænna björgunaryfirvalda á grundvelli NORDRED samningsins.
Dagmar Sigurðardóttir
lögfræðingur/upplýsingaftr.

Hluti æfingastjórnar Nordred að störfum í húsnæði Almannavarnadeildar Ríkislögreglustjórans í Skógarhlíð 14, Reykjavík. Frá vinstri: Tor Eivind Moss yfirmaður í björgunarmiðstöðinni í Stavangri í Noregi en hann hafði yfirumsjón með æfingunni fyrir hönd samnorrænu samtakanna Nordred, Auðunn F. Kristinsson yfirstýrimaður hjá Landhelgisgæslunni. Hann lék ýmis hlutverk í æfingunni, þ.á.m. sem skipherra varðskips á vettvangi. Leikur hans var afar sannfærandi að sögn félaga hans sem tóku þátt í æfingunni, Einar Sigurgeirsson varðstjóri í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar/vaktstöð siglinga en hann bar hitann og þungann af skipulagi æfingarinnar af hálfu Landhelgisgæslunnar og að síðustu Bára Benediktsdóttir hjúkrunarfræðingur sem kom að skipulagi æfingarinnar af hálfu Landlæknisembættisins. Á myndina vantar Thorben Jósef Lund yfirstýrimann hjá Landhelgisgæslunni en hann tók þátt í æfingastjórnun af hálfu Landhelgisgæslunnar og brá sér í ýmis hlutverk m.a. sem skipstjóri á skemmtiferðaskipinu. Mynd: DS.

Kristján Þ. Jónsson framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar í samhæfingarstöðinni í Skógarhlíð. Hlutverk hans var að stjórna að gerðum Landhelgisgæslunnar. Mynd:DS.

Harald Holsvik varðstjóri í stjórnstöð LHG/vaktstöð siglinga og Hjalti Sæmundsson aðalvarðstjóri í stjórnstöð LHG/vaktstöð siglinga en þeir voru báðir á fullu að samhæfa aðgerðir Landhelgisgæslunnar á starfsstöðvum LHG/vaktstöðvar siglinga í samhæfingarstöðinni. Mynd:DS.
