Sameiginleg björgunaræfing við Færeyjar milli Ægis og Triton

  • 3-Triton-AEgir-og-lettbatur-Tritons

Nýverið var varðskipið ÆGIR við bruna-, reykköfunar og sjúkraflutningaæfingar með danska varðskipinu TRITON á Kalseyjarfirði í Færeyjum í sunnan slagveðri.

Æfingin hófst á að tvö reykköfunarteymi frá TRITON sóttu slasaða og slökktu ímyndaðan eld í ljósavélarúmi ÆGIS. Gekk það að óskum og voru hinir „slösuðu“  fluttir yfir í TRITON til frekari aðhlynningar. Léttabátur TRITONS sá um alla flutninga milli skipa, sem var gert til að menn fái meira út úr æfingunni en reykköfunina eina og sér.

Eftir að allir eldar höfðu verið slökktir og slasaðir fengið fyrstu hjálp lét TRITON reka og ÆGIR æfði töku skips í tog. Í þess háttar aðgerðum eru æfð stjórntök skipsins í aðdraganda og upphafi dráttar, notkun línubyssu og allur undirbúningur s.s. samsetning dráttarbúnaðar, tildráttartaugar o.fl.
Æfingar sem þessar, milli varðskipa Landhelgisgæslunnar og danska sjóhersins, eru fastur liður í því ágæta samstarfi sem þessar stofnanir hafa átt um langt árabil.

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá Guðmundi St. Valdimarsssyni bátsmanni, teknar á æfingunni.


2-Triton-kominn-ad-AEgi
Triton kominn að Ægi

3-Triton-AEgir-og-lettbatur-Tritons
Triton Ægir og léttbátur Tritons

5-Laeknir-Tritons-hugar-ad-sjuklingum-og-nytur-adstodar-skipverja-AEgis
Læknir Tritons hugar að sjúklingum og nýtur aðstoðar skipverja Ægis

4-Reykafarar-Fra-Triton-og-slokkvilid-ad-storfum-um-bord-i-AEgi
Reykafarar Frá Triton og slökkvilið að störfum um borð í Ægi