Léleg veiði á úthafskarfaslóð á Reykjaneshrygg - níu sjóræningjaskip á miðunum
Þriðjudagur 25. apríl 2006.
Samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæslunnar eru aflabrögð á úthafskarfaslóð á Reykjaneshrygg fremur dræm og aðeins var einn íslenskur togari á slóðinni í gærmorgun. Flestir voru íslensku togararnir 6 talsins í síðustu viku.
Samkvæmt síðasta yfirliti voru 40 erlendir togarar tengdir úthafskarfaveiðum á veiðislóð, á siglingu í efnahagslögsögunni eða í höfn á Íslandi. Fimmtán þeirra eru frá Rússlandi, fjórir spænskir, níu svokölluð sjóræningjaskip og einn frá hverju eftirtaldra landa: Litháen, Lettlandi, Portúgal, Noregi, Færeyjum, Grænlandi og Þýskalandi.
Það er lögum samkvæmt óheimilt að veita sjóræningjaskipum þjónustu í íslenskum höfnum en svo eru skipin kölluð sem veiða á fiskveiðistjórnunarsvæði Norðaustur-Atlantshafsráðsins án veiðiheimilda og kvóta. Sjóræningjaskipin sem skráð eru í Georgíu heita: Carmen, Dolphin, Eva, Isabella, Juanita, Pavlovsk, Rosita og Ulla. Eitt sjóræningjaskip er skráð í Hondúras og heitir Santa Nikolas.
Sjá meðfylgjandi myndir sem áhöfn varðskipsins Ægis tók á hryggnum við eftirlit nú í apríl.
Dagmar Sigurðardóttir
lögfræðingur/upplýsingaftr.
Það gefur á bátinn á Reykjaneshrygg. Mynd: Halldór Benóný Nellett skipherra á varðskipinu Ægi.
Einar Örn Einarsson stýrimaður og Birgir H. Björnsson stýrimaður um borð í rússneska togaranum Omar ásamt skipstjóranum. Skipstjórinn á Omar var með allt á tæru og var vel tekið á móti NEAFC-eftirlitsmönnum Landhelgisgæslunnar í skipinu.
Einar Örn stýrimaður kannar birgðirnar um borð í rússneskum togara. Allt í góðu lagi hjá Rússunum.
Sjóræningjaskipið Ulla frá Georgíu. Mynd Halldór Benóný Nellett skipherra á varðskipinu Ægi.
Sjóræningjaskipið Santa Nicolas frá Hondúras. Mynd: áhöfn Ægis.
Sjóræningjaskipið Rosita frá Georgíu. Mynd: Guðmundur St. Valdimarsson bátsmaður á varðskipinu Ægi.
Sjóræningjaskipið Pavlovsk frá Georgíu. Mynd: áhöfn Ægis.
Sigurður Óskarsson stýrimaður les sjóræningjaskipunum pistilinn.
Sjóræningjaskipið Juanita frá Georgíu. Mynd: Guðmundur St. Valdimarsson bátsmaður á Ægi.
Sjóræningjaskipið Isabella frá Georgíu. Mynd: Guðmundur St. Valdimarsson bátsmaður á Ægi.
Sjóræningjaskipið Eva frá Georgíu. Mynd: Guðmundur St. Valdimarsson bátsmaður á Ægi.
Sjóræningjaskipið Dolphin frá Georgíu. Mynd: áhöfn Ægis.
Sjóræningjaskipið Carmen frá Georgíu. Mynd: áhöfn Ægis.