Samkomulag undirritað við björgunarstjórnstöðina í Færeyjum

  • Isavia_undirsksamn2

Miðvikudagur 9. mars 2011

Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar og Ásgeir Pálsson framkvæmdastjóri flugleiðsögusviðs ISAVIA hafa undirritað samkomulag við björgunarstjórnstöðina í Færeyjum, MRCC Tórshavn, varðandi fyrirkomulag samstarfs og upplýsingaskipti.

Isavia_undirsksamn
Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar og Ásgeir Pálsson framkvæmdastjóri flugleiðsögusviðs ISAVIA undirrita samkomulagið.

Landhelgisgæslan hefur með nýrri reglugerð um leit og björgun sjófarenda og loftfara tekið við hlutverki Isavia við stjórnun leitar og björgunar loftfara en Isavia mun áfram sinna viðbúnaðarþjónustu.  Með reglugerðinni var sjóbjörgunarstjórnstöð Landhelgisgæslunnar jafnframt breytt í björgunarstjórnstöð bæði sjófarenda og loftfara (JRCC-Ísland).  Mikil flugumferð er í suðausturhluta flugstjórnarsvæðis Íslands og er því nauðsynlegt að styrkja samstarf milli MRCC-Tórshavn og JRCC-Reykjavík eins og framast er unnt.  Samkomulagið við Færeyinga er gert með það að leiðarljósi.

Isavia_undirsksamn2
Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar og Ásgeir Pálsson framkvæmdastjóri flugleiðsögusviðs ISAVIA takast í hendur að
lokinni undirritun.

Isavia_undirsksamn3
Frá vinstri Ásgrímur L. Ásgrímsson yfirmaður stjórnstöðvar LHG, Halldór B. Nellett, framkvæmdastjóri Aðgerðasviðs LHG, Dagmar Sigurðardóttir, lögfræðingur LHG, Sigurleifur Kristjánsson,sérfræðingur flugumferðarsviði, Helgi Björnsson forstöðumaður rekstrarstofu ISAVIA, Egill Þórðarson, verkefnisstjóri ISAVIA. Fyrir framan Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar og Ásgeir Pálsson framkvæmdastjóri flugleiðsögusviðs ISAVIA.