Kanada sér um loftrýmisgæslu við Ísland

Miðvikudagur 30. mars 2011

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst á ný með komu flugsveitar Kanadíska flughersins sunnudaginn 3. apríl.  

Verkefnið er í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Alls munu um 160 liðsmenn kanadíska flughersins taka þátt í verkefninu og koma þeir til landsins með 4 F18 orrustuþotur, auk eldsneytisflugvélar.

Gera má ráð fyrir aðflugsæfingum að varflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum 6. – 9. apríl.

Er þetta er í fyrsta sinn sem þjónusta íslenskra stjórnvalda vegna loftrýmisgæslu er í umsjón Landhelgisgæslu Íslands en um áramót bættust starfsmenn íslenska loftvarnakerfisins í hóp starfsmanna Landhelgisgæslunnar.