TF-LÍF í útkall til Vestmannaeyja

Föstudagur 16. september 2011

Landhelgisgæslunni barst kl. 12:38 beiðni í gegnum Neyðarlínuna frá lækni í Vestmannaeyjum um aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna manns sem slasaðist alvarlega. Vegna þoku er ekki hægt fyrir flugvélar að lenda í Vestmannaeyjum. Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í loftið kl. 12:57 og lenti í Vestmannaeyjum kl. 13:38.  Farið var að nýju í loftið kl. 14:13 og lent við Landspítalann í Fossvogi kl. 14:38.