Varðskipið LHG bjargar flóttamönnum milli Marokkó og Spánar
Fimmtudagur 22. september 2011
Ægir, varðskip Landhelgisgæslunnar sem er að störfum á vegum landamærastofnunar Evrópubandalagsins, FRONTEX, bjargaði skömmu fyrir hádegi í dag 64 flóttamönnum af litlum, ofhlöðnum bát sem sökk miðja vegu á milli Marokkó og Spánar. Í hópnum voru nokkur börn. Fólkið var tekið um borð þar sem það hlaut viðeigandi aðhlynningu þangað til björgunarskip komu og sóttu það og fóru með það í land á Spáni.
Loft lak mjög hratt úr ofhlöðnum bátnum
Fólkinu var öllu bjargað á stuttum tíma, flestir um borð í léttbátinn en aðrir
komust upp síðustigana og í gúmmíbjörgunarbátana.
Virðist sem báturinn hafi rifnað.