Sjávarútvegsskóli Sameinuðu þjóðanna heimsækir LHG

Miðvikudagur 5. október 2011

Landhelgisgæslan fékk í gær heimsókn tuttugu nemenda í Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Fengu þau kynningu á starfsemi stjórnstöðvar með áherslu á fiskveiðieftirlit og -stjórnun. Voru þau mjög áhugasöm um verkefni Landhelgisgæslunnar en markmið skólans er að efla sérfræðiþekkingu í sjávarútvegi og fiskveiðum í þróunarríkjum.

Heimsokn_Sjavarutvskoli

G. Birkir Agnarsson varðstjóri í stjórnstöð LHG spjallar við gestina

Hafrannsóknastofnun ber ábyrgð á rekstri skólans, en starfsemin byggist m.a. á samstarfi við Matís, Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri, auk fjölda fyrirtækja og annarra stofnana. Nám við skólann felst í sex mánaða þjálfun fyrir sérfræðinga frá þróunarlöndunum en þeir sérhæfa sig á því sviði sem starf þeirra snýr að í sínu heimalandi. Sjávarútvegsskólinn leggur sérstaka áherslu á lönd í Afríku sunnan Sahara og smáeyþrjóunarríki, en einnig koma nemendur frá ýmsum löndum Asíu.

Á vef utanríkisráðuneytisins segir að frá upphafi hafa samtals 223 nemendur frá 43 löndum lokið sex mánað námsdvöl á Íslandi og þar af hafa 78 konur útskrifast úr skólanum.Til viðbótar því sex mánaða námi sem fer fram á Íslandi skipuleggur Sjávarútvegsskólinn stutt námskeið í þróunarlöndum í samvinnu við heimamenn og alþjóðlegar stofnanir auk þess sem skólinn styður nemendur til meistar og doktorsnám á Íslandi.

Vefur Sjávarútvegsskólans á ensku.