Dómsmálaráðherra undirbýr eflingu þyrlubjörgunarsveitar Landhelgisgæslunnar

Föstudagur 24. mars 2006.

Í fréttatilkynningu dómsmálaráðuneytisins í dag segir:

,,Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, greindi ríkistjórn frá því í morgun, hvernig staðið verður að undirbúningi til að efla þyrlusveit Landhelgisgæslu Íslands í samræmi við ákvarðanir ríkisstjórnarinnar.

Vegna þeirra tímamarka sem við blasa, eftir að Bandaríkjastjórn ákvað að kalla þyrlusveit sína frá landinu fyrir lok september, telur dóms- og kirkjumálaráðherra óhjákvæmilegt að leysa verkefnið í tveimur áföngum, það er til bráðabirgða með leigu á þyrlum og nánu samstarfi við nágrannaþjóðir, og síðan til langframa með kaupum eða leigu á nýjum þyrlum.

Ráðherra hefur falið Stefáni Eiríkssyni, skrifstofustjóra í dóms-og kirkjumálaráðuneytinu, að leiða þetta starf á vegum ráðuneytisins í samráði við Georg Lárusson, forstjóra Landhelgisgæslu Íslands, og samstarfsmenn hans.

Þá hefur Leifur Magnússon, verkfræðingur, tekið að sér að verða ráðgjafi dóms- og kirkjumálaráðherra um þá þætti málsins, sem lúta að vali á þyrlum, og í viðræðum við aðila, innlenda og erlenda.

Stefnt er að því að tillögur um bráðabirgðalausn liggi fyrir innan þriggja vikna og tillögur um framtíðarskipulag innan tveggja mánaða. Að fengnum þeim tillögum mun dóms- og kirkjumálaráðherra leggja málið að nýju fyrir ríkisstjórn."


Áhöfn danska varðskipsins Triton tók þessa mynd er þyrlusveit Landhelgisgæslunnar æfði eldsneytistöku í skipinu á síðasta ári.  Eldsneytisslöngur voru hífðar upp að þyrlunni, eldsneyti dælt á hana á flugi og slöngunum síðan slakað niður á skipið að nýju. Með þessari aðferð geta þyrlurnar flogið lengra út á haf en ella, þ.e.a.s. ef skipið er talsvert frá landi.  Sjá fréttatilkynnigu um æfinguna á slóðinni:
http://lhg.is/displayer.asp?cat_id=4&module_id=220&element_id=1952