Mikil stemmning í Þór
Sunnudagur 30. október 2011
Varðskipið Þór hefur laðað að sér fjölda manns dagana frá því að það lagði að Miðbakka Reykjavíkurhafnar. Á sunnudag var komin löng röð þegar skipið opnaði og streymdi mannfjöldinn um borð.
Að sögn Sigurðar Steinars Ketilssonar skipherra gekk afar vel að sýna skipið. Á sunnudag komu samtals um 4100 manns og var mikil stemmning um borð. Gaman að upplifa áhugann sem ungir sem aldnir deila á varðskipinu.
Um 12.000 manns hafa skoðað varðskipið frá því að það kom til Íslands. Framundan er ýmiss konar vinna og undirbúningur um borð fyrir verkefni næstu vikna en áætlað er að skipið leggi úr höfn að nýju um næstu helgi. Til stendur að varðskipið komi víða við um landið á næstu mánuðum þar sem það verður til sýnis fyrir alla áhugasama.
Hér er myndband sem var tekið um borð.
CNN IReport birti einnig fréttir af komu v/s ÞÓR til Íslands.
CNN IReport myndband