Fyrirlestur um eldsvoðann um borð í Goðafossi

  • Godafoss07

Miðvikudagur 4. janúar 2011

Einar Örn Jónsson, slökkviliðsmaður hjá Slökkviliði höfuðborgasvæðisins hélt í morgun fróðlegan fyrirlestur um borð í varðskipinu Þór þar sem hann fjallaði um eldsvoðann sem varð í Goðafossi þann 30. október 2010. Börðust skipverjar við mikinn eld í skorsteinshúsi skipsins, í aftakaveðri milli Íslands og Færeyja.  Var þá Einar Örn þá 2. stýrimaður í afleysingum.

Var fyrirlestur Einars mjög vel sóttur af áhöfnum varðskipa og loftfara Landhelgisgæslunnar.


Godafoss_eldur_fyrirlIMG_5962-(1)
Í skýrslu Rannsóknanefndar sjóslysa kemur fram að góð þjálfun og rösk viðbrögð skipverja hafi gert gæfumuninn hversu vel tókst til við gífurlegu erfiðar aðstæður.

Í atvikalýsingu segir m.a.;

„...þegar skipið var statt á 64°01´N og 11°06´V, urðu skipstjórnarmennirnir á stjórnpalli varir við að mikill bjarmi lýsti upp umhverfið aftan við skipið. Skipstjórinn lét yfirvélstjórann vita að öðru hvoru gysu miklar eldtungur upp úr reykröri aðalvélar.“  

 „Áhöfn var kölluð út til slökkvistarfa samkvæmt neyðaráætlun og skipinu snúið upp í veðrið og haldinn sjór á hægri ferð auk þess sem Vaktstöð siglinga var upplýst um stöðuna.  Mikill eldur var inni í skorsteinshúsinu og virtust upptök hans vera niður við gólfið á A-þilfari við afgasketilinn.  Eldur teygði sig upp eftir skorsteinshúsinu og upp öll þilför að loftræstiristunum og leitaði þar út. Úti skíðlogaði afturþil skorsteinshússins og réðust skipverjar skipsins til atlögu við eldinn.“  

Nánar á síðu RNS

Myndir Jón Páll Ásgeirsson, yfirstýrimaður

Godafoss_eldur_fyrirlIMG_5962-(3)
Godafoss_eldur_fyrirlIMG_5962-(2)
Godafoss_eldur_fyrirlIMG_5962-(4)