Enginn lét lífið á sjó árið 2011
Miðvikudagur 4. janúar 2011
Enginn íslenskur sjómaður fórst í sjóslysi við Ísland á árinu 2011 sem eru gleðileg tíðindi fyrir Landhelgisgæsluna og alla þá sem koma að sjóbjörgunarmálum á Íslandi. Þeirra á meðal eru varðstjórar Landhelgisgæslunnar innan stjórnstöðvar/vaktstöðvar siglinga, sem eru á vakt allan sólarhringinn árið um kring og fylgjast með umferð skipa og báta innan hafsvæðisins. Þeir vakta merki frá öryggisbúnaði skipa og kalla út björgunareiningar ef óhöpp verða. Þetta er í annað sinn sem slíkt gerist svo vitað sé, en árið 2008 lét enginn íslenskur sjómaður lífið til sjávar. Þó varð eitt banaslys á íslensku hafsvæði á árinu, á grænlenska nótaveiðiskipinu, Eriku, þegar skipverji fór fyrir fyrir borð og drukknaði.
Björgunarflug á árinu 2011
Margir samverkandi þættir hafa vafalaust áhrif á þessa fækkun sjóslysa, menntun sjómanna, betri búnaður, t.d. ferilvöktunar- og öryggisbúnaður sem verður sífellt þróaðri, skipakostur hefur batnað, námskeið Slysavarnarskóla sjómanna og fleira. Þyrla Landhelgisgæslunnar kemur einmitt að grunnnámskeiði skólans og eru sjómenn þar m.a. þjálfaðir í móttöku og björgun með þyrlu. Nú er útgerðum gert skylt að lögskrá skipverja á öll skip sem gerð eru út í atvinnuskyni þannig að betri vitneskja er aðgengileg um hverjir eru um borð í nær öllum skipum. Fjölgun þeirra sem verða að sækja Slysavarnaskólann má m.a. rekja til gildistöku öryggisfræðsluskyldu til handa sjómönnum á smábátum. Skv. lögum er sjómönnum sem hafa verið lögskráðir á skip lengur en 180 daga gert skylt að sækja slysavarnarnámskeið sjómanna og er ekki hægt að lögskrá þá án þess.
Æfing með þyrlu LHG
Sú breyting átti sér stað um áramótin 2011-2012 að lögð var niður vöktun á sendingum Racal tækja (gamla kerfið) í STK – sjálfvirku tilkynningarskyldunni. Samkvæmt reglugerð um vaktstöð siglinga og eftirlit með umferð skipa nr. 672/2006 átti eftir orðanna hljóðan að skipta út Racal tækjum fyrir AIS tæki í skipum og bátum með haffæri á hafsvæði A1 strax um áramótin 2010 / 2011. Af hagkvæmnisástæðum var miðað við að skipti færu fram í síðasta lagi við búnaðarskoðun á árinu 2011.
Frá stjórnstöð LHG
Nú eiga öll skip og bátar að hafa farið í gegnum búnaðarskoðun og tækjaskipti eiga að hafa farið fram. Hefst nú vinna við niðurtekt á landstöðvum og slökkt verður á miðlægum búnaði. Tvö kerfi þjóna nú skipum/bátum á hafsvæði A1, sjálfvirkt auðkennikerfi skipa AIS og fjarskiptakerfi með stafrænu valkalli DSC. Bæði kerfin eru alþjóðleg, þ.e. samþykkt af Alþjóðasiglingamálastofnuninni (á ensku: IMO sem stendur fyrir International Maritime Organization), ólíkt því sem gilti um Racal búnaðinn.