Sprengjusveit eyðir tundurdufli á Héraðssandi
Föstudagur 6. janúar 2011
Landhelgisgæslunni barst í gær tilkynning um dufl sem fannst við Selfljótsós á sunnanverðum Héraðssandi. Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar var upplýst um málið og fengu þeir sendar myndir sem staðfestu að um var að ræða tundurdufl frá seinni heimstyrjöldinni. Talið var nauðsynlegt að fara á staðinn til eyðingar.
Komu sprengjusveitarmenn austur í gærkvöldi og í birtingu var haldið á staðinn. Var um að ræða eitt dufl og reyndist vera sprengiefni í því. Var því eytt á staðnum með dínamíti og plastsprengiefni, sjá myndskeið. Ekki sáust fleiri dufl í sandinum að þessu sinni.
Sprengjusérfræðingur kannar innihald duflsins
Að sögn sprengjusérfræðinga geta tundurdufl varðveist vel í sandi ef þau er alveg grafin niður en koma upp á yfirborðið við breytingar í sandinum - eins geta þau horfið skyndilega. Mikilvægt er fyrir sprengjusérfræðinga að vera fljótir á vettvang eftir að tilkynning um dufl hefur borist til þeirra. Best er að hafa samband við 112 sem gefur samband áfram til stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar.
Landhelgisgæslan hefur gert um 5000 tundurdufl óvirk af þeim rúmlega 100 þúsund sem Bretar lögðu úti fyrir Austfjörðum í seinni heimstyrjöldinni. Áttu duflin að að loka siglingaleið þýskra kafbáta út á Atlantshafið.
Duflið tilbúið til eyðingar
Myndir Sigurður Ásgrímsson, yfirmaður sprengjusveitar