Flugvél frá NASA með aðsetur innan svæðis LHG á Keflavíkurflugvelli 

Vinna að rannsóknum á snæbreiðu Grænlands

  • NASA-ER-2-Picture-5

Fimmtudagur 29. mars 2012

Rannsóknarflugvél NASA Earth Resources (ER-2) verður næstu vikur hýst í flugskýli Landhelgisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli.  Vélin er væntanleg til Íslands á morgun og er hún sérhönnuð til að fljúga í hárri lofthæð og útbúin fullkomnum mælitækjum. Í upplýsingum frá bandaríska sendiráðinu segir að flugvélin verði staðsett á Íslandi í um mánuð og mun hún á tímabilinu sinna rannsóknum í mikilli lofthæð yfir Grænlandi.

Í tilkynningu frá sendiráði Bandaríkjanna segir einnig;

Markmiðið með veru vélarinnar hér á landi er að mæla nákvæmni nýlega þróaðs mælitækis sem nefnist MABEL (Multiple Altimeter Beam Experiment Lidar). Mælingarnar eru hluti af þróunarferli sambærilegs mælitækis er verður hluti af IceSat-2, gerfihnetti frá NASA sem verður loftsettur árið 2016 og er ætlað að fylgjast með umhverfis- og loftslagsbreytingum.  Verkefnið mun styðja við rannsóknir á loftlagsbreytingum með þróun betri aðferða við að mæla bráðnun heimskautaíss.

NASA-ER-2-Picture-3

Flugvélin er gerð út frá Rannsóknarflugsetri NASA í Edwards, Kaliforníu. Flugmaður vélarinnar er Timothy L. Williams, reyndur flugmaður sem starfaði lengi hjá Flugher Bandaríkjanna.

Ferilskrá Williams: http://www.nasa.gov/centers/dryden/news/Biographies/Pilots/williams.html

Frekari upplýsingar um heimsókn ER-2 vélarinnar má finna hér: http://www.nasa.gov/centers/dryden/Features/ER-2_mabel_mission.html 

Auka myndir og myndband af ER-2 flugvélinni má finna á Facebook síðu sendiráðs Bandaríkjanna: http://www.facebook.com/USEmbReykjavik

NASA-ER-2-Picture-2