TF-LIF komin til landsins eftir skoðun í Noregi

  • LIF_2IMG_5316

Þriðjudagur 1. maí 2012

Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-LIF, kom til Reykjavíkur eftir hádegi í dag eftir að hafa verið frá miðjum janúar í skoðun sem fór fram í Noregi. Eflaust hefur koma þyrlunnar vakið athygli því þegar þyrlan kom til Reykjavíkur voru TF-GNA og TF-SYN að koma úr verkefnum og fylgdu þær TF-LIF í lágflugi inn til lendingar á Reykjavíkurflugvelli. Með komu TF-LIF til landsins er Landhelgisgæslan á ný með þrjár þyrlur til taks. 

LIF_IMG_5338

Skoðunin sem framkvæmd var á þyrlunni kallast G-skoðun og tóku starfsmenn flugtæknideildar Landhelgisgæslunnar þátt í verkinu.  Gæðakröfur gera ráð fyrir að G-skoðun fari að jafnaði fram á 12 ára eða 7500 flugtíma fresti. Var þetta í fyrsta sinn sem TF-LIF fór í skoðun sem þessa en hún er sú umfangsmesta sem þessar þyrlur fara í gegnum. Þyrlan var öll tekin í sundur, skrokkur hennar og fylgihlutir skoðaðir af nákvæmni og viðgerðir með tilliti til sprungumyndana og tæringar. Í lok skoðunar var vélin svo máluð og hefur hún nú fengið nýtt útlit.

LIF_3IMG_5328

LIF_IMG_5341