Krókaveiðibátur strandaði NNA af Hrollaugseyjum

  • _MG_0632

Miðvikudagur 9. maí 2012

Landhelgisgæslunni barst um kl. 07:30 í morgun aðstoðarbeiðni frá krókaveiðibát með einn mann um borð sem var strandaður á sandrifi NNA af Hrollaugseyjum. Samstundis var haft samband við Ingibjörgu, björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Höfn í Hornafirði sem fór til aðstoðar og var báturinn laus af strandstað um kl. 10:00. Mun björgunarskipið fylgja bátnum til Hafnar.