TF-LÍF sótti slasaðan mann í Aðalvík
Sunnudagur 20. maí 2012
Landhelgisgæslunni barst kl. 16:00 í dag aðstoðarbeiðni frá Neyðarlínunni eftir að maður á sextugsaldri slasaðist er hann féll 6-8 metra við eggjatöku í Aðalvík á Hornströndum. Björgunarskip og bátar Slysavarnarfélagsins Landsbjargar (SL) á svæðinu voru köllaðir út auk þyrlu Landhelgisgæslunnar sem tók með sér undanfara SL.
Fór þyrlan í loftið kl. 16:45 og var flogið beint í Aðalvík. Þegar komið var á svæðið var hinn slasaði kominn um borð í Gunnar Friðriksson, björgunarskip SL á Ísafirði. Seig sigmaður niður í björgunarskipið og undirbjó manninn fyrir flutning, var hann síðan hífður um borð í þyrluna. Flogið var af staðnum kl. 18:30 og var lent á Landspítalanum í Fossvogi kl. 19:34.
Myndir Felix Valsson.
Stutt myndskeið af staðnum.