Rýnifundur vegna Dynamic Mercy
Föstudagur 8. júní 2012
Í vikunni var haldinn rýnifundur vegna æfingarinnar Dynamic Mercy fór fram í apríl síðastliðnum. Var æfingin tvískipt og með þáttöku þjóða við Norður Atlantshaf. Þær þjóðir sem aðila áttu á fundinum voru auk Íslands, Noregur, Bretland, Danmörk, Færeyjar, Grænland, Belgía, Holland, Þýskaland og Rússland. Atlantshafsbandalagið tók einnig þátt í æfingunni sem hefur farið fram árlega til margra ára.
Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar býður gesti velkomna til fundarins.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar /JRCC Ísland og björgunarmiðstöðvar við Norður-Atlantshafið bera þungann af æfingunni en tilgangur hennar er að þjálfa borgaralega og/eða hernaðarlega stjórnendur og starfsmenn björgunarmiðstöðvanna í ýmsum aðstæðum sem upp geta komið á svæðinu. Í ár voru æfð viðbrögð við flugatviki ásamt viðbrögðum og samhæfingu aðgerða vegna mögulegs eldgoss á Jan-Mayen.
Á rýnifundinum var farið yfir niðurstöður hvers svæðis fyrir sig og leitað eftir atriðum sem geta bætt vinnu og verkferla í samhæfingu leitar og björgunar, samvinnu á milli þjóða/svæða bæði við raunverulegar aðstæður (leit og björgun) en einnig þegar verið er að æfa viðbragð og fyrirfram skilgreind atriði. Eru niðurstöður dregnar saman í heildarskýrslu sem verður birt síðar í sumar.
Sjá fréttir á heimasíðu LHG frá æfingunum.
Æfing við Færeyjar þ. 10.apríl, sjá hér.
Æfing við Jan Mayen þ. 25.apríl, sjá hér