Þyrluáhöfn LHG æfir með þýskum herskipum á Faxaflóa

  • 19062012_Aefing3

Þriðjudagur 19. júní 2012

Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-GNA var í morgun við æfingar með þýsku herskipunum Frankfurt og Emden á Faxaflóa. Með báðum skipunum voru æfðar hífingar, aðflugi stjórnað frá skipinu með þeirri tækni sem notuð er í mjög litlu skyggni og lending á  þyrlupalli. Var þyrlan fest niður, sleppt og tekið á loft. Gekk æfingin mjög vel, góð þjálfun fyrir báða aðila, en nokkur munur virðist vera á verklagi þeirra og Landhelgisgæslunnar.

 Ljósmyndir GBA

19062012_Aefing

19062012_Aefing2

19062012_Aefing3

19062012_Aefing4