Varðskipið Týr komið til Íslands eftir langa siglingu
Þriðjudagur 3. júlí 2012
Varðskipið Týr kom til hafnar í Reykjavík þann 22. júní síðastliðinn eftir 6000 sjómílna siglingu á 43 dögum frá Íslandi til Kanada. Varðskipið hafði sótt skipið Hebron Sea þangað og dró það síðan yfir Atlantshafið til Grenå i Danmörku þar sem skipið var tekið til niðurrifs. Landhelgisgæslan tók þetta verkefni að sér sem verkataki fyrir danskt fyrirtæki sem sérhæft er í niðurrifi úreldra skipa.
Gekk ferðin nokkuð vel en þó hægði verulega á siglingunni þegar komið var út á Atlandshaf með skipið í togi. Blés þá norðaustan á móti skipunum langleiðina yfir hafið. Heimferðin frá Danmörku gekk ágætlega.
Hér eru myndir sem voru teknar af Jóni Páli Ásgeirssyni, yfirstýrimanni í ferðinni.
Talsvert tók í taugina á milli skipanna
Komið til hafnar í Danmörku