Hafís sást í eftirlitsflugi TF-SYN

  • Hafis-1

Miðvikudagur 11. júlí 2012

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SYN fór í eftirlitsflug í gær þar sem flogið var frá Reykjavík um Hrútafjörð, Húnaflóa, Skagafjörð, Kögur og þaðan á Ísafjörð. Mikil umferð var á sjó en um hádegi voru rúmlega sexhundruð skip og bátar í fjareftirliti Landhelgisgæslunnar.

Þyrluáhöfn sá ísrönd á leið út úr Húnaflóa og ákvað að athuga nánar staðsetningu hennar. Kom í ljós að hún  var um 30 sml N af Hornbjargi, á stað 66°57,2'N - 022°24,8'V. Var ísröndin frekar þunn og gisin. Ekki sáust stórir jakar á þessum slóðum. Ísbreiðan var nokkuð stór og lá hún úr VSV í NNA, voru einstaka ísdreifar norður af Hornbjargi.

Myndir Björn Brekkan Björnsson.

Hafis-2

Hafis-1