Þyrla sækir slasaðan ferðamann að Glym

  • GNA2

Sunnudagur 15. júlí 2012

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út kl. 14:35 í dag að beiðni lögreglunnar í Borgarnesi eftir að erlend ferðakona slasaðist á fæti fyrir ofan Glym í Hvalfirði. Þar sem erfitt var fyrir björgunarsveitarfólk að komast  að staðnum var óskað eftir þyrlu. TF-LIF fór í loftið kl. 15:01 og sótti hina slösuðu. Lent var við Landspítalann í Fossvogi kl. 15:50.