Áhöfn Týs við eftirlit um borð í færeyskum skipum og bátum
Þriðjudagur 17. júlí 2012
Varðskipið Týr var nýverið við eftirlit á suðvestur, suður, suðaustur og austurmiðum. Varðskipsmenn fóru m.a. um borð í sjö færeyska handfæra og línubáta, íslenska togara og dragnótabáta.
Við eftirlit um borð í færeysku bátunum kom í ljós að aflamagn var í samræmi við tilkynningar til Landhelgisgæslunnar. Færeysku skipin hafa tilkynnt um 33.500 tonn á árinu, þar af 30.140 af loðnu, en kvótinn var 30.000 tonn samkvæmt reglugerð nr. 056/2012. Botnfiskvótinn er 5600 tonn eins og undanfarin ár, þar af má þorskur ekki vera meira en 1200 tonn.
Varðskipsmaður um borð í færeyskum handfærabát
Í leiðangri varðskipsins var einnig öldumælisdufli ásamt legufærum lagt út undan Kögri og vinnu við ljósdufl sinnt fyrir Siglingastofnun Íslands í Faxaflóa, mynni Hvalfjarðar, Skerjafirði og í Breiðafirði. Sjá frétt.
Myndir Snorre Greil.
Veiðar á karfa
Kafteinninn gerir að afla